Karellen
news

Nýtt ár

06. 01. 2023

Gleðilegt ár. Við á Könglalandi erum svona að koma okkur í gírinn eftir langt og gott jólafrí. Við höfum þessa vikuna verið að leika okkur mikið í frjálsa leiknum og höfum notið þess, en í næstu viku mun starfið byrja af fullum krafti hjá okkur þar sem við verðum með hópastarf, íþróttahús, tónlist, staf vikunnar og fullt af öðru skemmtilegu. Við hlökkum til að byrja nýtt ár og takast á við komandi verkefni.

© 2016 - 2024 Karellen