Karellen
news

Fullveldisdagurinn 1.desember

01. 12. 2022

Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. Desember 1918 tóku gildi milli Íslands og Danmerkur Sambandslögin sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi sínu við Danmörku. Í þeim kom meðal annars fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. Dagurinn varð smám saman að Almennum Þjóðhátíðardegi fram að Lýðveldistíma og var Íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta sinn sem fullgildur Þjóðfáni þennan dag.Lítið var samt um hátíðahöld þegar upp á hann var haldið í fyrsta sinn árið 1918 enda veturinn með eindæmum harður og oftast kallaður Frostaveturinn mikli. Katla gaus einnig frá 12. Október til 4. Nóvember og seint í Október barst drepsótt sú sem kölluð var Spánska veikin til landsins og létust hundruð manna. Loks brast á nýtt kuldakast þegar veikin stóð sem hæst og ekki þótti ráðlegt að hafa langa útisamkomu við þessar aðstæður.

© 2016 - 2024 Karellen