Karellen
news

Alþjóðadagur kennara

07. 10. 2022

Þann 5. október var Alþjóðlegur dagur kennara og var haldið upp á daginn víðsvegar um heiminn.„Við eigum frábæra kennara í skólum landsins sem daglega mæta margvíslegum áskorunum í störfum sínum. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur síðan 1994 að frumkvæði UNESCO, UNICEF og EI, alþjóðasamtaka kennara. Markmiðið er að beina sjónum að mikilvægi kennarastarfsins fyrir samfélög heimsins. Við eigum frábæra kennara í skólum landsins sem daglega mæta margvíslegum áskorunum í störfum sínum. Margt má betur fara í starfsaðstæðum þeirra. En í þessum hópi býr eldmóður og gróska. Við sem samfélag þurfum að hlúa að kennurunum okkar – þannig verður til framúrskarandi skólastarf, nemendum til heilla. Til hamingju með daginn!

© 2016 - 2026 Karellen