Síðustu ár hefur skapast hefð fyrir því að októbermánuður hefur verið kallaður bleikur mánuður en bleiki liturinn er tilkomin vegna átaksins Bleika slaufan. Bleika slaufan er átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Bleiki dagurinn er föstudaginn 14. október nk. en þá eru allir hvattir til að klæðast bleiku, bera bleiku slaufuna og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma, sér til skemmtunar og til að sýna konum sem greinst hafa með krabbamein samstöðu.
Við í Birkilundi ætlum að halda upp á daginn og klæðast einhverju bleiku eða vera með eitthvað bleikt og svo er aldrei að vita nema eitthvað óvænt verði á boðstólum. Við hvetjum alla til að taka þátt í þessum degi með okkur og gera hann bleikan og skemmtilegan.