Karellen
news

Fyrsti vetrardagur

21. 10. 2022

Fyrsti Vetrardagur er fyrsti dagur Gormánaðar fyrsta mánaðar vetrarmisseris Íslenska misseristalsins.

Hann ber ætíð eins og Gormánaðar sjálfur upp á fyrsta laugardag að lokinni síðust viku sumarmisseris þeirrar 26. eða 27. viku sumars sé um Sumarauka að ræða á tímabilinu 21. til 27. október nema í rímspillisárum þá 28. október. Frá 16. öld til þeirrar 19. var hann bundinn við föstudag en því þá breitt yfir á laugardag eins og hann er í dag.

Líkt og Sumardagurinn fyrsti var hann messudagur fram til ársins 1744. Í rímtali Arngríms Jónssonar lærða og Guðbrands Þorlákssonar biskups er Gormánuður kallaður Slátrunarmánuð. Sem þó er líkt og flest mánaðanöfnin í Snorra-Eddu ekki eiginleg nöfn mánaðanna heldur frekar lýsing á hvaða verk voru helst unnin í viðkomandi mánuði eða veðra að vænta. Enda hefst vetrarmisserið að aflokinni sláturtíð og síðasti dagur hennar þann 1. nóvember og sá dagur kallaður Sviðamessa. Oft var haldið sérstaklega upp á sviðamessu með tilheyrandi sviðaáti sem og öðrum þeim mat sem þá var ferskur eftir sláturtíðina og tíðkast sá siður víða enn þann dag í dag þótt ekki fari eins mikið fyrir honum og áður fyrr. Var tilstand á þessum tvennum tímamótum oft slegið saman í eina hátíð með tilheyrandi veislumat.(Íslenskt almanak)

© 2016 - 2024 Karellen